Þetta blogg er tileinkað henni Aðalheiði Kristjánsdóttur frænku minni með meiru

Annars er það helst í fréttum að ég er alveg að fara að koma heim

bara á föstudaginn

ég er farin að sakna allra svo mikið :/ vá hvað það verður gaman

Annnars er bara mjööög gaman hérna, ooog ótrúlegt að þetta sé hálfnað

.... ég á svo eftir að sakna allra sem ég er búin að kynnast hérna.... Allir svo miklir æðibitar

oooog ég vona bara að þessir sem eftir eru eigi eftir að endast út önnina, því að það eru 5 hættir, þannig við erum bara 17 í skólanum núna... eeen það er þá bara fámennt og góðmennt

Það er samt svo mikið að gera hjá mér núna... ooog ég er búin að vera svooo dugleg

ég er búin að sauma barnaskyrtu og sauma út í hana mynda af tveim strumpum... sauma náttbuxur, vefa værðarvoð (rúmteppi 120x200cm) og gólfteppi, svo er ég að sauma út í dúk. Svo er næringarfræði og textílfræði og heinlætisfræði, og matartækni. Svo er ég nátla búin að elda alveg helling

ooog baka, oog strauja og þvo og þrífa.... ooog þetta er allt alveg bara ógeðlsega gaman, ooog gengur flest allt bara mjög vel

Nema sniðteikning... það er eitthvða það leiðinlegasta og heimskulegasta sem ég hef farið í... svo eru ég og saumavélar heldur ekkert alltof góðir vinir, eeen þetta er allt að koma

eeen hvað er málið með það að fólk er alltaf að gefa mér menn.... að vísu er það mjög þægilegt, því þá þarf ég ekkert að vera að hafa fyrir því sjálf XD .... eeen nýji maðurinn minn heitir Jóhannes held ég...! Hann er bróðir hennar Dóru sem er með mér í skólanum hérna, ooog ég hugsa að eitthvað af fólkinu sem les þetta blogg viti betur hvernig hann lítur út heldur en ég

því hann er í búfræði á Hvanneyri

En ástæðan fyrir því að hann er maðurinn minn er sá að hann er með pensilín ofnæmi, eins og ég, og þessvegna pössum við svona vel saman XD

Fólkið hérna er búið að vera að bíða eftir því að ég borði óvart nautakjöt, síðan ég byrjaði hérna, því ég er kölluð lífsglaða manneskjan og hláturpoki og eitthvað, því ég er aldrei í vondu skapi HAHA.... eeen um daginn breyttu ALLIR um skoðun, og ákváðu að ég ætti aldrei aldrei aftur að borða nautakjöt, því að ég borðaði grænmeti sem var steikt á sömu pönnu og hakkbollurnar... VÁ, mér finnst svo fyndið að maður geti umturnast í eitthvað annað dýr, á því einu að fá smá ögn af nautakjöti í sig, því að eins og venjulega þegar ég er búin að borða nautakjöt, fékk ég kast, varð gg pirruð, rakti upp allt sem ég var búin að gera um morguninn í saumum, neitaði að syngja og fólkið í kringum mig þorði ekki að tala við mig, sem var einsgott, því þá hefði ég farið að grenja úr geðvonsku --- hafiði einhverntíman heirt um eitthvað jafn vitlaust... oog sem meira var að ég borðaði ekki einu sinni hakkið sjálft, -- kennarinn minn vill senda mig sem tilraunadýr í háskólann, því hún heldur að ég sé one of a kind sem fær skapsveiflur af nautakjöti
á Fimmtudaginn var sko geðvekt stuð, ég fór á Barkann sem er undankepni ME fyrir söngkeppni framhaldsskólanna, og það var geðveikt fínt, en það sem var mest skemmtilegt var að ég og Steffý vorum að láta eins og hálvitar, og fólkið sem þekkti okkur vildi helst hverfa.... því við vorum að klappa ekki í takt, hlæja og öskra... aallavega ógeðslega gaman, Björgvin FranZ var kinnir og skemmtikraftur, ooog það var ógeðslega skemmtilegt bara

eeeen það besta átti eftir að koma, því að það var Ball með DJ Páli Óskari um kvöldi

VÁ! það var gaman, hef ekki farið á ball, síðan Stínuballið á milli jóla og nýárs... var alveg kominn tími til...! því ekki er félagslífið á Egilsstöðum svo gott... einn bar, sem er svo pínu lítill að hann er álíka stór og bara eldhúsið og stofan heima hjá mér, með barnum og klóstinu og öllu

... pínu kjánlegt, en hér er semsagt aðalstuðið að rúnta&drekka, sem ég er ekkert voðalega hrifin af, því ég drekk eginlega ekki, og svo kinnist maður engu fólki þanni, það er ekkert stuð!
Eeeen þetta partý leisi verður bætt upp um páskana.... það verður djammað allan daginn allt páskafríið, sem ég ætla að hafa 3 vikur

hver er geim... ooog hver vill halda partý

Svo er einsgott að það verði einhver sveitaböll.... hef heyrt að það eigi að vera föstudagslanga ball, eins og venjulega, og ég held að Steffý og Snæfríður ætli að koma með mér þangað, og sína ykkur sveitalúðunum hvernig alvöru húsmæður haga sér

XD
Svo er maður bara farinn að plana sumarið, ooog það verður stuð, vinna í Húsafelli, og ég soga alveg að mér fólkið þangað, því bæði Gunna og Þorgerður ætla að koma aftur, svo ætlar María og koma og vinna í sundlauginni hjá mér, og svo er Kristín að sækja um vinnu í sjoppunni

vá! það verður stuð....


svooo á bara að djamma helling og skemmta sér nóg, ooog hitta aalla þessu skemmtilegu borgfirðinga og nærsveitarfólk, því ég er nú svona í hreinskilni sagt farin að sakna Borgarfjarðar soldið mikið, ooog verð örugglega farin að sakna hans aftur 22 Maí !!
eeeen þetta er nú bara orðið nokkuð gott blogg, sérstaklega þar sem þessi tími átti að fara í að klára Njálssögu, eða skrifa ritgerð... eeen það er bara seinnitíma vandamál, því nú held ég að ég verði að fara að sofa fljótlega, því það er útsaumstími klukkan níu í fyrramálið... !
þannig góða nótt :***
P.S. ég hef ekki hugmynd um afhverju ég skrifaði allt sem stendur í þessu blogg, eeen það kom bara, ooog Alla það er einsgoot að þú lesir það allt

ASLE